Iðjuþjálfi á Egilsstöðum
Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða iðjuþjálfa sem sinnir virkni á hjúkrunarheimilum HSA með starfstöð á hjúkrunarheimilinu Dyngju á Egilsstöðum. Starfshlutfall er 70% og er vinnutími sveigjanlegur. Staðan er laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sér um skipulag og sinnir virkni á hjúkrunarheimilum HSA. Starfar samkvæmt gildandi lögum og reglugerðum. Leiðbeinir öðru aðstoðarfólki sem er byrjendur í starfi. Tekur þátt í þverfaglegri starfsemi.
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/rafsígarettur er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins.
Starfshlutfall er -70%
Umsóknarfrestur er til og með 27.10.2021
Nánari upplýsingar veitir
Bríet Magnúsdóttir – [email protected] – 470-3040
Soffía Sigríður Jónasdóttir – [email protected] – 470-3040