
Hjúkrunarheimilið á Vopnafirði – Sumarstörf
Starfsfólk óskast til sumarafleysinga á hjúkrunardeild Sundabúðar. Um er að ræða störf í vaktavinnu við aðhlynningu aldraðra og á næturvaktir í þvottahúsi.
Einnig vantar matráð og aðstoðarmatráð í mötuneyti og starfsmann í ræstingu.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar.
Nánari upplýsingar gefur Emma Tryggvadóttir hjúkrunarforstjóri í síma 470 1240 og [email protected]
Deila