Hjúkrunarfræðingur við heilsugæslu HSA í Fjarðabyggð

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing við heilsugæslustöð HSA Fjarðabyggð . Upphafs starfs getur verið samkomulag. Starfshlutfall er 80 – 100% eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn móttaka á heilsugæslustöð, s.s. skiptistofa,  ung- og smábarnavernd, heilusvernd skólabarna ásamt rafrænni heilbrigðisþjónustu.

Hæfniskröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Kostur er að viðkomandi hafi reynslu í heilsugæsluhjúkrun, ljósmóðurmenntun eða heilsugæslusérnám. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.05.2021

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Pétursdóttir – [email protected] – 618-1904
Jónína Guðrún Óskarsdóttir – [email protected] – 865-5737

Smelltu hér til að sækja um starfið