Hjúkrunarfræðingur – Seyðisfjörður

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sumarafleysingar á Hjúkrunarheimilið Fossahlíð á Seyðisfirði. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn störf hjúkrunarfræðings á deildinni.

Hæfnikröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.03.2020

Nánari upplýsingar veitir
Kristín Guðveig Sigurðardóttir – [email protected] – 470-3060 & 868-7158
Stefanía Stefánsdóttir – [email protected] – 470-3058 & 846-5037

Seyðisfj. Fossahlíð
Suðurgata 8
710 Seyðisfjörður

Smelltu hér til að sækja um starfið