Hjúkrunarfræðingur – Fjarðabyggð – heilsugæsla

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa í heilsugæslunni í Fjarðabyggð. Starfshlutfall er 80% eða skv. samkomulagi. Staðan veitist í eitt ár frá 1. desember 2019.

Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn heilsugæslumóttaka og heilsuvernd.

Hæfnikröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er kostur og/eða reynsla af vinnu á heilsugæslu.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Íslenskukunnátta áskilin.
Ökuréttindi nauðsynleg.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 25.11.2019

Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Pétursdóttir – [email protected] – 470-1428 & 618-1904
Jónína Guðrún Óskarsdóttir – [email protected] – 470-3081 & 865-5737

Heilbrigðisstofnun Austurlands
Fjarðabyggð Heilsugæsla
Strandgötu 31
735 Eskifjörður