Hjúkrunarfræðingur á hjúkrunardeild í Neskaupstað

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt samkomulagi. Unnið er á vöktum og gott ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst. HSA er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 420 manns starfa á þrettán starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og byggir HSA þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fagleg vinna á hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahússins.

Hæfniskröfur

Íslensk hjúkrunarleyfi / sjúkraliðaréttindi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.10.2021

Nánari upplýsingar veitir

Anna Sigríður Þórðardóttir – [email protected] – 470-1460 & 863-7030
Sigríður Kristinsdóttir – [email protected] – 470-1450 & 864-0239

Smelltu hér til að sækja um starfið

WordPress › Villa

There has been a critical error on this website.

Learn more about troubleshooting WordPress.