Hjúkrunarfræðingur á Djúpavogi – sumarafleysing

Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sumarafleysingu á heilsugæslu HSA sem sinnir Djúpavogi, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði, ásamt nærsveitum. Starfshlutfall er 40%.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn móttaka á heilsugæslu og heilsuvernd. Almenn móttaka sjúklinga og þátttaka í bakvöktum utan dagvinnu.

Hæfnikröfur

Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er kostur og/eða reynsla af vinnu á heilsugæslu. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Íslenskukunnátta áskilin. Ökuréttindi nauðsynleg.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um störf skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum laus störf. Reykingar/tóbaksnotkun eða notkun á veipi er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

Starfshlutfall er 40%

Umsóknarfrestur er til og með 22.02.2021

Nánari upplýsingar veitir

Jónína Guðrún Óskarsdóttir – [email protected] – 865-5737
Guðrún Pétursdóttir – [email protected] – 470-1420 & 618-1904

Smelltu hér til að sækja um starfið

Secret Link