Frístundarleiðbeinandi við Nesskóla
Laus er til umsóknar stöður frístundaleiðbeinanda við Nesskóla. Hver staða er 50% í lengdri viðveru, Vinaseli eftir hádegi. Ráðið er í starfið frá 1.ágúst 2024 til eins árs með möguleika á framtíðarráðningu.
Í skólanum eru um 200 börn í 1. – 10. bekk. Leitað er að einstakling með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við kennara, foreldra og stjórnendur skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoðar yfirmann frístundar við dagleg störf í frístund
- Hjálpar nemendum við að skipuleggja og framkvæma ýmis þroskandi verkefni
- Gefur nemendum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt inni sem úti
- Aðstoðar nemendur í kaffi-og matartímum
- Gætir fyllsta öryggis í vinnu með nemendum og forðast þær aðstæður sem geta reynst geta hættulegar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Ábyrgð og stundvísi.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og framkomu.
- Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.