Framtíðarstarf við íþróttamiðstöð á Seyðisfirði

Leitað er að starfskrafti í íþróttamiðstöðina á Seyðisfirði. Um er að ræða hlutastarf sem unnið er á vöktum og aðra hverja helgi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
  • Almenn þrif og annað sem til fellur.
  • Eftirlit og gæsla með gestum íþróttamiðstöðvar.
  • Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir íþróttakennslu.
  • Almenn afgreiðsla og uppgjör.
  • Allar almennar ræstingar.
  • Taka á móti og leysa úr/koma áleiðis öllum ábendingum sem berast frá viðskiptavinum.
  • Fylgist með samskiptum notenda og leysir úr ágreiningi.
  • Vinna gegn áreitni og ofbeldi s.s. í búningsklefum og vísar erfiðum málum í réttan farveg.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára.
  • Snyrtimennska, góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
  • Góð málakunnátta s.s. íslenska, enska, þriðja tungumál kostur.
  • Reynsla er kostur.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Secret Link