Framtíðarstarf hjá Olíudreifingu á Reyðarfirði
Olíudreifing leitar að meiraprófsbílstjóra sem hefur ríka þjónustulund og getur unnið sjálfstætt, til framtíðarstarfa á
Reyðarfirði. Um fjölbreytt starf er að ræða við olíudreifingu beint á tanka, skip og vinnu í birgðastöðvum.
Olíudreifing greiðir ADR námskeið og laun á námskeiðstíma fyrir þá bílstjóra sem ekki hafa ADR réttindi. Við hvetjum jafnt konur og
karla til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar veitir Helgi Marcher Egonsson í síma 550 9937.
Meginstarfsemi Olíudreifingar er dreifing og birgðahald á fljótandi eldsneyti. Olíudreifing rekur einnig bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði. Starfsmenn félagsins eru um 130 talsins á starfsstöðvum víðsvegar um landið. Starfað er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum. Nánari upplýsingar um Olíudreifingu ehf. má nálgast á www.oliudreifing.is.
Sótt er um starfið í gegnum Vinna undir Störf í boði www.vinna.is
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 25. nóvember sé viðkomandi ekki með ADR réttindi.