Framleiðslustörf

Alcoa Fjarðaál leitar að jákvæðu og duglegu fólki í fjölbreytt framleiðslustörf í kerskála, skautsmiðju og steypuskála. Við erum stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Álverið á Reyðarfirði er meðal þeirra fullkomnustu í heiminum og saman sköpun við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Um 360 framleiðslustarfsmenn eru kjarninn í verðmætasköpun Fjarðaáls. Framleiðslustörfin eru að jafnaði unnin á þrískiptum átta tíma vöktum.

 

Hvers vegna að vinna með okkur?

  • Við höfum 150 klukkustunda vinnuskyldu á mánuði
  • Við erum með vaktakerfi sem gefur góðar tekjur og góðan frítíma
  • Við fáum ókeypis akstur til og frá vinnu og frítt fæði í frábæru mötuneyti
  • Við leggjum mikla áherslu á að tryggja öryggi og heilsu allra á vinnustaðnum
  • Við höfum okkar eigin heilsugæslu og aðgang að Velferðaþjónustu Heilsuverndar
  • Við trúum því að samhent teymi ólíkra einstaklinga skili bedtum árangri
  • Við gerðum með okkur sameiginlegan sáttmála um góða vinnustaðamenningu
  • Við höfum sett okkur metnaðarfull markmið í jafnréttismálum í samstarfi við Jafnréttisvísi
  • Við fáum góð tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar
  • Við erum með virkt umbótastarf þar sem áhersla er lögð á þátttöku starfsmanna
  • Við búum í nálægð við náttúruna í fjölskylduvænu samfélagi á Austurlandi

Ferkari upplýsingar um framleiðslustörfin veitir mannauðsteymi Fjarðaáls í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 470 7700

Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, tala íslensku, vera með gild ökuréttind og hreint sakavottorð. Umsóknir eru trúnaðarmál og þeim er öllum svarað.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Fríðindi í starfi

  • Rútuferðir frá helstu byggðarkjörnum
  • Íþrótta og meðferðastyrkir
  • Öflug velferðaþjónusta
  • Mötuneyti
  • Fatnaður

Sæktu um starfið hér

Secret Link