Forstöðuaðili íþróttamiðstöðvar

Laus er til umsóknar staða forstöðuaðila íþróttamiðstöðvar á Fljótsdashéraði frá 1. Júní 2022.

Viðkomandi ber ábyrgð á rekstri Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum og íþróttahúss í Fellabæ og hefur daglega umsjón með viðhaldi mannvirkja, tækja og búnaðar.

Um framtíðarstarf er að ræða.

Næsti yfirmaður er íþrótta- og æskulýsðsstjóri Múlaþings.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbuningur fjárhags-, verk- og framkvæmdaáætlana fyrir Íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum og íþróttahúsið í Fellabæ
  • Annars smærra viðhald og hefur umsjón með öllum viðhaldsverkefnum.
  • Dagleg stjórnun starfsfólks, þ.m.t. ráðningar og vaktaáætlanir.
  • Umsjón með allri útleigu og notkun mannvirkjanna.
  • Umsjón með fjárhag sinna stofnana.
  • Innkaup, utanumhald, skipulagning og ýmislegt sem til fellur í daglegum rekstri.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði.
  • Skipulagshæfni
  • Lausnamiðun og geta til að bregðast við óvæntum aðstæðum.
  • Góð almenn tölvuþekking mikilvæg og reynsla af aðgangs- og bókhaldskerfum kostur.
  • Viðkomandi þarf að standast námskeið í björgun og skyndihjálp og sundpróf fyrir laugarverði.

 

Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10.gr. laga nr. 70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.

Öllum umsóknum sakal fylgja rökstuðningur frir hæfni viðkomandi í starfið.

Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Bylgja Borgþórsdóttir, í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected].

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is.

Secret Link