Flugvallastarfsmaður Egilsstaðaflugvelli- sumar

Isavia innanlandsflugvellir leita eftir einstaklingi til sumarafleysinga við flugvallarþjónustu og á vélaverkstæði Egilsstaðaflugvallar. Helstu verkefni eru björgunar- og slökkviþjónusta, viðhald flugvallar og umhverfis hans, viðhald á tækjum sem og að sinna flugvernd. Umsækjandi þarf að standast læknisskoðun og þolpróf.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Bílpróf er skilyrði
  • Meirapróf er kostur
  • Reynsla af slökkvistörfum og vinnuvélapróf er kostur
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Harðarson umdæmisstjóri, [email protected]

Við hvetum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar 2023 og sótt er um starfið í gegnum vefsíðu Isavia: Yfirlit yfir störf í boði | Isavia