Flokkstjórar í Fjarðabyggð

Vilt þú taka þátt í að móta framtíðina?

Vinnuskóli Fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf flokkstjóra laus til umsóknar. Í störfunum felst skipulagning og stýring á vinnuhópum unglinga fæddum 2006 og 2007 við ýmis umhverfisstörf. Flokkstjórar þurfa að vera hvetjandi, stundvísir, samviskusamir og góðar fyrirmyndir. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, hafi hreint sakavottorð, bílpróf ásamt því að búa yfir skilpulags- og leiðtogahæfileikum.

Menntun og reynsla

  • Þarf að hafa náð 18 ára aldri.
  • Reynsla af stjórnun er æskileg
  • Jákvætt og gott hugarfar
  • Skipulags- og samskiptahæfni.

Hæfnisþættir

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Vinna í hóp
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Umsóknarfrestur er til og með 17.maí n.k. og aðeins er tekið við rafrænum umsóknum í gegnum ráðningavef Fjarðabyggðar.

Frekari upplýsingar veitir Helga Björk Einarsdóttir, garðyrkjustjóri,[email protected] eða í síma 470 9000.