Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf í barnavernd.
Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á framtíðarráðningu, á fjölbreyttum og spennandi vinnustað hjá sveitarfélagi sem hefur stækkað hratt á undanförnum árum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
- Vinnsla barnaverndarmála.
- Ráðgjöf við foreldra og börn.
- Samstarf við aðrar stofnanir sem tengjast börnum.
Hæfniskröfur:
- Háskólapróf til starfsréttinda í félagsráðgjöf eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla á sviði barnaverndar er æskileg.
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna undir álagi.
- Færni til að vinna sjálfstætt sem og í hópi með skipulögðum og öguðum vinnubrögðum.
Starfslýsing Sérfræðingur í barnavernd
Launakjör eru skv. kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd Fjarðabyggðar. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2020.
Nánari upplýsingar veita Óskar Sturluson, Stjórnandi fjölskylduráðgjafar og barnaverndar – [email protected] eða Laufey Þórðardóttir, Sviðsstjóri fjölskyldusviðs – [email protected]
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér