Fjölbreytt sumarstörf hjá COWI Ísland

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sumarstörf hjá COWI og við leitum að öflugum og framsýnum háskólanemum til að starfa með okkur í sumar. COWI leggur áherslu á að byggja upp framtíðar starfsfólk með því að bjóða upp á lærdómsríkt og alþjóðlegt vinnuumhverfi þar sem nemendur fá tækifæri á að taka virkan þátt í krefjandi verkefnum á flestum sviðum verkfræði, tæknivísinda og sjálfbærni. Við hvetjum öll áhugasöm sem stunda háskólanám á fyrrnefndum sviðum til þess að sækja um, en ráðið verður í fjölbreytt störf, í flestum landshlutum og í öllum deildum.

Fríðindi í starfi
  • Niðurgreiddur matur í mötuneyti.
  • Öflugt starfsmannafélag.
  • Samgöngustyrkur.
  • Líkamsræktar- og sturtuaðstöðu.
  • Bootcamp-æfingar tvisvar í viku, skokkhóp og margt fleira.
Secret Link