Fjölbreytt skrifstofustarf á Austurlandi

EFLA leitar að jákvæðum og glaðlyndum starfsmanni til starfa á starfstöð EFLU á Reyðarfirði. Um er að ræða hlutastarf með sveigjanlegan vinnutíma á tímabilinu 8-16.

Hér er einstakt tækifæri fyrir fjölhæfan aðila sem hefur ríka þjónustulund og sveigjanleika til að taka að sér starf í skemmtilegu starfsumhverfi og sinna fjölbreyttum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með skrifstofu og starfsemi henni tengdri
  • Umsjón með kaffistofu starfsfólks
  • Umsýsla og samskipti við viðskiptavini
  • Almenn skrifstofustörf
  • Umsjón með viðburðum
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samvinnu
  • Almenn tölvukunnátta
  • Skipulagshæfni, stundvísi og reglusemi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð færni í íslensku í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi
  • Góður og hollur matur í hádeginu
  • Vellíðunarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Hreyfistyrkur
  • Gleraugnastyrkur
  • Fæðingarstyrkur
  • Hleðsla á rafbíl
  • Símastyrkur
  • Símaáskrift og heimatenging
Secret Link