Félagsþjónustan auglýsir eftir starfsfólki – Fljótdalshérað

Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs auglýsir eftir starfsfólki í eftirfarandi störf:

Félagsleg heimaþjónusta frá 1. ágúst 2020, um er að ræða 60% – 100% starf. Starfið felst meðal annars í aðstoð við heimilishald og persónulega umhirðu ásamt því að veita félagsskap.

Búsetuþjónustu fatlaðs fólks frá 1. september 2020, um er að ræða vaktavinnu í allt að 100% starfshlutfalli, en einnig eru í boði hlutastörf. Starfið felur í sér aðstoð til fatlaðs fólks við athafnir daglegs lífs s.s. heimilisstörf, persónulega aðstoð, félagslega þátttöku og tómstundir.

Liðveisla, tímavinna. Liðveisla felst í því að rjúfa félagslega einangrun og aðstoða einstaklinginn við að taka þátt í ýmis konar uppbyggilegu tómstundastarfi s.s. útivist og hreyfingu. Hver einstaklingur fær u.þ.b. tvær til fjórar klst. á viku í liðveislu.

Hæfniskröfur

  • Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Íslenskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.
  • Ökuréttindi eru æskileg.

Umsóknarfrestur er til 15. júlí n.k.
Fólk af báðum kynjum er hvatt til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög. Nánari upplýsingar um störfin veita Aðalheiður Árnadóttir, í síma 470 0700 og á netfangi [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir, í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected]Umsóknareyðublöð má fá á heimasíðu Fljótsdalshéraðs. Vinnustaðir Fljótsdalshéraðs eru reyklausir og fjölskylduvænir.