Félagsleg heimaþjónusta – sumarstarf
Um er að ræða 50% – 100% sumarstarf frá 25. maí nk.
Starfið felst meðal annars í aðstoð við heimilishald og persónulega umhirðu ásamt því að veita félagsskap.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Íslenskukunnátta.
- Ökuréttindi eru æskileg.
- Þekking og reynsla sem nýtist í starfi væri kostur.