Fasteigna- og framkvæmdafulltrúi – Fjarðabyggð

FASTEIGNA- OG FRAMKVÆMDAFULLTRÚI FJARÐABYGGÐAR

Fasteigna- og framkvæmdafulltrúi  sér um rekstur og umsjón með fasteignum og lóðum Fjarðabyggðar. Auk þess hefur hann ábyrgð á verklegum framkvæmdum, viðhalds- og rekstrarverkefnum fyrir eignasjóð Fjarðabyggðar, ásamt ábyrgð og eftirliti með viðhaldi leiguhúsnæðis Fjarðabyggðar.

Helstu verkefni:

  • Yfirumsjón með eignum eignasjóðs.
  • Ábyrgð á framkvæmdum á vegum Fjarðabyggðar
  • Ábyrgð á leiksvæðum og leikvöllum þar með töldum öryggismálum.
  • Ábyrgð á og skipulagningu á leiguhúsnæði.
  • Ábyrgð á áætlanagerð vegna framkvæmda á vegum eignasjóðs
  • Ábyrgð á skipulagningu á viðhaldi og uppbyggingu leiksvæða og leikvalla
  • Ábyrgð á gerð gæðahandbóka fyrir leiksvæði og leikvelli.
  • Ábyrgð á öryggis- og eldvarnamála í fasteignum Fjarðabyggðar.

Hæfniskröfur:

  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi.
  • Tæknimenntun á háskólastigi er kostur.
  • Reynsla af ráðgjafarstörfum og eða verkefnastjórn æskileg.
  • Reynsla af og þekking á fasteignamálum.
  • Þekking á stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli.

Starfslýsing – Fasteigna- og framkvæmdafulltrúi Fjarðabyggðar.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands Íslenskra Sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna.

Allar frekari upplýsingar veitir Marinó Stefánsson, framkvæmdsviði í síma 470-9000 eða í tölvupósti [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvember 2020.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.

Secret Link