ERT ÞÚ AÐ LEITA AÐ SKEMMTILEGRI VINNU Í ALÞJÓÐLEGU STARFSUMHVERFI?
Hótel Hallormsstaður leitar að hressu og góðu fólki í ýmis störf:
GESTAMÓTTAKA Reynsla í þjónustustörfum nauðsynleg, lágmarksaldur 20 ára.
ÞJÓNUSTUFÓLK Í SAL Reynsla nauðsynleg, lágmarksaldur 18 ára.
MATREIÐSLUMENN OG MATREIÐSLUNEMA
STARFSMENN Í ÍSBÚÐ/VERSLUN
Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir hæfni í mannlegum samskiptum, sýni sjálfstæði í vinnubrögðum og geti unnið undir álagi. Möguleiki á húsnæði á svæðinu
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á
[email protected]
Nánari upplýsingar veittar í tölvupósti og síma 859-2401.