Egilsstaðastofa og Tjaldsvæðið á Egilsstöðum leitar að starfsfólki

Egilsstaðastofa og Tjaldsvæðið á Egilsstöðum leitar að starfsfólki fyrir sumarið 2020.
Um er að ræða lifandi og skemmtilegt starf við afgreiðslu, upplýsingagjöf og þrif.
Leitað er að drífandi og skipulögðum einstaklingum með framúrskarandi þjónustulund.

Hæfniskröfur
• Góð þekking á staðháttum á Fljótsdalshéraði og Austurlandi
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði (fleiri tungumál kostur)
• Sjálfstæð vinnubrögð

Möguleiki er að semja um að hefja og enda störf  á skemmri eða lengri tíma yfir sumarmánuðina.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2020.
Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á [email protected].

Egilsstaðastofu er ætlað að styrkja og efla markaðsstarf á Fljótsdalshéraði. Á sumrin er aðal áherslan lögð á að veita upplýsingar um Héraðið sem áfangastað ferðamanna og verslunar- og þjónustumiðstöð.
Á Egilsstaðastofu má finna almenningssalerni og sturtur, þvottavélar og þurrkara, vörur af Héraði og stór bílastæði fyrir rútur sem og aðra bíla.

Egilsstaðastofa og Tjaldsvæðið á EGS er OPIÐ ALLAN ÁRSINS HRING!