Deildarstjóri og tónlistarkennari við Djúpavogsskóla

Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli sem óskar annars vegar eftir deildarstjóra tónlistardeildar og hins vegar tónlistarkennara. Alls er um eina og hálfa stöðu að ræða og möguleiki á 50-100% starfshlutfalli í hvoru starfi um sig.

Ráðning er til eins árs með góðum möguleika á framtíðarstarfi.

Leitað er að tónlistarfólki sem er tilbúið til að taka þátt í að innleiða skapandi og faglegt tónlistarstarf við skólann. Meirihluti kennslu fer fram á skólatíma.

Djúpavogskirkja leitar einnig að organista við kirkjuna í hlutastarf og hér er frábært tækifæri fyrir tvo tónlistarkennara og möguleikar á 100% starfi fyrir báða á svæðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla á hljóðfæri og/eða í söng
  • Önnur kennsla, svo sem tónfræði- og forskólakennsla, í samræmi við hæfni og áhuga
  • Deildarstjóri sér einnig um daglegan rekstur og verkefnastjórnun innan tónlistardeilda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi
  • Færni í hljóðfæra- og eða söngkennslu
  • Færni í píanó og/eða gítarkennslu kostur
  • Vilji til þess að bæta við sig færni til þess að kenna á ýmis hljóðfæri
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Vilji og hæfni til teymiskennslu með öðrum kennurum
  • Áhugi á skólaþróun og nýjum og fjölbreyttum leiðum í skólastarf
  • Geta til að starfa sjálfstætt
  • Góð skipulagshæfni
  • Íslenskukunnátta eða vilji til þess að læra íslensku
Secret Link