DEILDARSTJÓRAR VIÐ LEIKSKÓLANN DALBORG

Leikskólinn Dalborg auglýsir eftir deildarstjóra. Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Skólinn vinnur eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART. Um er að ræða 100 % stöðu.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun áskilin
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Starfslýsing deildarstjóri leikskóla I.pdf

Nánari upplýsingar gefur Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, leikskólastjóri í síma 476-1341 eða thordismb@skolar.fjardabyggd.is

Umsóknir og umsóknarfrestur       

Staðan er laus frá 1. september 2022. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ. Umsóknarfrestur er til 25. maí

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is með því að smella hér