Bílstjóri með meirapróf óskast – Egilsstaðir

Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs leitar að bílstjóra með meirapróf til að sinna ferðaþjónustu fyrir
fatlað fólk og eldri borgara. Um er að ræða fullt starf með vinnutíma frá kl. 08.00-17.00 virka
daga. Bílstjóri sér um akstur skv. daglegu tímaplani og veitir fólki nauðsynlega aðstoð við að
komast í og úr bíl og á viðkomustað. Bílstjóri hefur umsjón og eftirlit með ferðaþjónustubílnum.

Menntunar og hæfniskröfur:
• Ökuréttindaflokkur D1
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góðir samskiptahæfileikar

• Þjónustuvilji og sveigjanleiki
• Hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til og með 23. janúar 2020
Öllum umsóknum verður svarað.
Umsókn ásamt starfsferilsskrá skulu berast á netfangið [email protected]
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Gunnarsdóttir, í síma 4700700.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Fólk af báðum kynjum er hvatt til að sækja um.
Vinnustaðir Fljótsdalshéraðs eru reyklausir og fjölskylduvænir.