Bílaleiga Akureyrar í Fellabæ óskar eftir sumarstarfsmanni
Starfslýsing
Við leitum að duglegum, samviskusömum og stundvísum einstaklingi í sumarvinnu í þjónustudeild Bílaleigu Akureyrar á starfsstöð fyrirtækisins í Fellabæ. Í þjónustudeild er bifreiðafloti fyrirtækisins þrifinn hátt og lágt, að innan sem utan. Einnig felst í starfinu afgreiðsla, akstur og ferjanir á bílum ásamt öðrum tilfallandi verkefnum. Við leitum því að einstaklingi sem er óhræddur við líkamlega vinnu og hefur náð 18 ára aldri. Unnið er frá 08:00 – 18:00 virka daga og aðra hvora helgi.
Starfskröfur:
Gilt ökuskírteini
Stundvísi
Rík þjónustulund
Lipurð í mannlegum samskiptum
Jákvæðni og áreðanleiki
Hreint sakavottorð
Upplýsingar um starfið veitir Ólafur Björnsson, stöðvarstjóri í síma 461 6072.
Umsóknir sendist á netfangið [email protected] merktar Egilsstaðir-sumarstarf.
Mikilvægt er að ferilskrá og mynd fylgi umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 22.maí n.k