Atvinna hjá Bókasafni Héraðsbúa

Óskað er eftir starfsmanni í 50% starf á Bókasafni Héraðsbúa sem fyrst.
Bókasafnið er á efstu hæð í Safnahúsinu, Laufskógum 1 á Egilsstöðum. Það er opið frá klukkan 14 til 19 alla virka daga, vinnutíminn verður á því tímabili.

Helstu verkefni starfsmanns eru að annast afgreiðslu og uppröðun safnkosts, leiðbeina og veita safngestum aðstoð.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Stúdentspróf ákjósanlegt.
• Góð tölvukunnátta og færni í netnotkun
• Reynsla af notkun Gegnis, Landskerfi bókasafna, er kostur en ekki nauðsyn.
• Nákvæmni og samviskusemi
• Góð samskiptafærni
• Handlagni er kostur og ekki skemmir að þekkja vel til í sveitarfélaginu.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2017.
Umsóknir sem greina frá menntun, reynslu og fyrri störfum skulu berast til forstöðumanns Bókasafns
Héraðsbúa, Laufskógum 1.

Einnig má senda umsóknir og fyrirspurnir á netfangið [email protected].

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Fljótsdalshéraðs: www.fljotsdalsherad.is.

Secret Link