Alcoa Fjarðaál Reyðarfirði leitar að góðu fólki til sumarafleysinga

Spennandi sumarstörf hjá traustu fyrirtæki

Alcoa Fjarðaál leitar að góðu fólki til sumarafleysinga í álverinu við Reyðarfjörð.

Um er að ræða framleiðslustörf á þrískiptum átta tíma vöktum í kerskála, skautsmiðju og steypuskála Fjarðaáls. Sumarstarfsmenn þurfa að geta unnið samfellt í að minnsta kosti tvo og hálfan mánuð. Möguleiki er á áframhaldandi starfi. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, hafa gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.

Almennar hæfniskröfur

Sterk öryggisvitund og árvekni

Dugnaður og vilji til að takast á við krefjandi verkefni

Heiðarleiki og stundvísi

Lipurð í samskiptum og vilji til að vinna í teymi

Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 2. mars. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Umsóknir eru trúnaðarmál og verður þeim öllum svarað.

Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störfin.

Frekari upplýsingar veitir mannauðsteymi Fjarðaáls í síma 470 7700.

Hægt er að sækja um sumarstarf hjá Fjarðaáli á www.alcoa.is.