Alcoa Fjarðaál leitar að fólki til sumarafleysinga við Reyðarfjörð

Spennandi sumarstörf hjá traustu fyrirtæki

Alcoa Fjarðaál leitar að góðu fólki til sumarafleysinga í álverinu við
Reyðarfjörð. Um er að ræða framleiðslustörf á þrískiptum átta tíma vöktum
í kerskála, skautsmiðju og steypuskála Fjarðaáls. Sumarstarfsmenn þurfa að
geta unnið samfellt í að minnsta kosti tvo og hálfan mánuð. Möguleiki er á
áframhaldandi starfi. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, hafa gild
ökuréttindi og hreint sakavottorð.

Almennar hæfniskröfur
Sterk öryggisvitund og árvekni
Dugnaður og vilji til að takast á við krefjandi verkefni
Heiðarleiki og stundvísi
Lipurð í samskiptum og vilji til að vinna í teymi
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 17. febrúar. Áhugasamir eru
hvattir til að sækja um sem fyrst. Umsóknir eru trúnaðarmál og verður þeim
öllum svarað.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störfin. Frekari
upplýsingar veitir mannauðsteymi Fjarðaáls í síma 470 7700 eða
í gegnum netfangið [email protected]. Hægt er að sækja um
sumarstarf hjá Fjarðaáli á www.alcoa.is.

Alcoa hefur verið leiðandi í áliðnaði frá því að fyrirtækið var stofnað árið
1888 og álver Fjarðaáls við Reyðarfjörð er meðal þeirra fullkomnustu í
heiminum. Öryggi er í fyrirrúmi og mikið lagt upp úr góðum aðbúnaði
starfsmanna, öflugu félagsstarfi og stuðningi við samfélagið.