Aðstoðarmaður við innkaupadeild – HSA
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmann við innkaupadeild HSA, með starfsstöð í Neskaupstað.
Starfshlutfall er 60% eða skv. samkomulagi. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn störf í innkaupadeild. Pantar lyf og rekstrarvörur fyrir allar deildir HSA, tekur á móti og gengur frá lyfjum og vörum skv. fyrirmælum frá deildarstjóra innkaupa.
Leysir deildarstjóra af í hans fjarveru.
Hæfniskröfur
Lögð er áhersla á frumkvæðni og metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin og önnur tungumálakunnátta kemur sér vel. Lyfjatækni- og/eða sjúkraliðamenntun er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert og samkvæmt stofnanasamningi viðkomandi félags við HSA.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2021
Nánari upplýsingar veitir
Svava I Sveinbjörnsdóttir – [email protected] – 4701435 / 8923092
Þorgerður Malmquist – [email protected] – 4701486 / 8606845