Aðstoðarmaður í eldhúsi – Neskaupstaður

Aðstoðarmaður í eldhúsi – Neskaupstaður – Umdæmissjúkrahús Austurlands
HSA óskar eftir að ráða starfsmann í eldhús Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Vaktavinna. Staðan er laus frá og með 1. janúar 2021.

Helstu verkefni og ábyrgð
Þarf að geta eldað og gengið í öll störf í eldhúsi.

Hæfnikröfur
Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Vinnutímaskipulag: Vaktavinna
Starfshlutfall: 100%
Starfssvið: Sumarstörf
Stéttarfélag: AFL Starfsgreinafélag
Umsóknarfrestur er til: 04.12.2020
Nánari upplýsingar veitir
Eva Mjöll Þorfinnsdóttir – [email protected] – 470-1482 & 776-2443
Loftur Gíslason – [email protected]

Smelltu hér til að sækja um starfið
https://radningarkerfi.orri.is/?s=23036&oj_Router=1N4IgTg9hAuIFwgPwGcC8AmAzABkwNhAF8g