Aðstoðarmaður í eldhúsi – Egilsstaðir – HSA

Aðstoðarmaður í eldhúsi – Egilsstaðir – HSA

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmann í mötuneytiseldhús HSA á Egilsstöðum. Unnið er á virkum dögum og aðra hverja helgi í dagvinnu. Starfshlutfall er 70-100% eða skv. samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Fjölbreytt störf í eldhúsi.

Hæfnikröfur
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.

HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.03.2020

Nánari upplýsingar veitir
Emil Sigurjónsson – [email protected] – 4703053
Vilmundína L Kristjánsdóttir – [email protected] – 4703000

Egilsst. Eldhús
Lagarás 17
700 Egilsstaðir

Smelltu hér til að sækja um starfið