Aðstoðarmaður í eldhúsi, Egilsstaðir

Störfin eru á hjúkrunar- og heilsugæslusviðum HSA.
ÓTÍMABUNDIN STÖRF
• Aðstoðarmaður í eldhúsi, Egilsstaðir
• Aðstoðarmatráður, Neskaupstaður

SUMARSTÖRF 2019
HSA óskar eftir starfsfólki í sumararafleysingar á starfsstöðvum
stofnunarinnar á Egilsstöðum og Seyðisfirði.
Um er að ræða hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, aðstoðarfólk
í umönnun, móttökuritara og önnur störf s.s. í eldhúsi.

Nánari upplýsingar um öll störf og rafrænt umsóknarform er að finna á vef HSA www.hsa.is
undir flipanum Laus störf. Einnig birt á starfsauglýsingavef ríkisins www.starfatorg.is.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin
þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús
Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu