Aðstoð við landvörð á Teigarhorni
Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir eftir aðila til að aðstoða landvörð á Teigarhorni í Berufirði. Um a.m.k. 50% sumarstarf erað ræða í a.m.k. einn mánuð en viðkomandi getur fengið starf sem flokkstjóri í vinnuskóla Múlaþings á Djúpavogi til að fylla upp í 100% starf.
Umsækjandi þarf að verða sér úti um húsnæði búi viðkomandi ekki í nágrenni Teigarhorns.
Teigarhorn við Berufjörð er friðlýst sem fólkvangur og hluti jarðarinnar er náttúruvætti, á svæðinu starfar landvörður sem vaktar svæðið og vietir allar helstu upplýsingar. Innan marka jarðarinnar er einn merkasti fundarstaður geislasteina (zeólíta) í heiminum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn landvarsla.
- Eftirlit með svæðinu, reglulegar eftirlitsferðir, tína rusl úr fjörum.
- Fræðslugöngur með gesti.
- Fylgjast með fugla- og dýralífi svæðisins.
- Móttaka gesta í steinasafni og fræðsla.
- Daglegar úrkomumælingar.
- Vakta ástand stíga og gönguleiða reglulega og bæta úr ástandi ef þörf krefur.
- Ýmis viðhaldsvinna.
- Vakta dreifingu ágengra, framandi tegunda á svæðinu og uppræta eftir föngum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Bílpróf er skilyrði.
- Krafa um frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Reynsla af landvörslu er kostur.
- Landvarðarréttindi er kostur.
- Tungumálakunnátta er kostur.
- Þekking á svæðinu er kostur.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags.
Öllum umsóknum skal fylgja kynningarbréf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rúnar Mattíasson, í síma 470 0766 og á netfanginu [email protected].
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Sæktu um starfið hér: Aðstoð við landvörð á Teigarhorni | Teigarhorn | Sumarstarf Djúpivogur | Alfreð (alfred.is)