Skapandi sumarstörf í Fjarðabyggð

Fjarðabyggð leitar að ungu fólki sem fætt er á árunum 1996 til 2004 til að taka þátt í skapandi sumarstarfi Menningarstofu Fjarðabyggðarí allt að tíu vikur á tímabilinu 1. júní til 13. ágúst 2021.

Skapandi sumarstörf eru hugsuð fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að efla listsköpun sína og um leið glæða sveitarfélagið lífi með listrænum og skapandi uppákomum. Starfið hentar fólki með fjölbreyttan áhuga á skapandi greinum og menningu, t.d. á tónlist, myndlist, hönnun, sviðslistum og kvikmyndagerð.

Starfið verður mótað að áhugasviði þátttakenda, en verkefnin þurfa að uppfylla ákveðna skapandi þjónustu við samfélögin, til dæmis að koma fram við ýmis tilefni í byggðakjörnunum eftir því sem tími og aðstæður leyfa. Stefnt er að því að halda uppskeruhátíð skapandi sumarstarfa í lok starfstímans. Gert er ráð fyrir því þátttakendur starfi að mestu leyti sjálfstætt en fái leiðsögn frá verkefnisstjóra hópsins.

Umsækjendur skila inn kynningarbréfi um sig, áhugasvið sín sem og hugmyndum að verkefnum sem umsækjandi hefur áhuga á að vinna að í sumar. Við val á umsækjendum verður tekið tillit til reynslu umsækjenda, sýnileika og frumleika hugmynda, fjölbreytni, kynjahlutfalls umsækjenda, gæði umsókna o.fl.

Allt að 5 ungmenni fái tækifæri til að vinna skapandi sumarstörf í ár og eru bæði einstaklingar og smærri hópar hvattir til að sækja um. Athugið að í ár kemur Fjarðabyggð ein að skapandi sumarstörfum og því verða umsækjendur að vera búsettir þar.

Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2021. Sótt er um hér.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Menningarstofu Fjarðabyggðar: Á netfanginu [email protected] eða síma 470 9000

WordPress › Villa

There has been a critical error on this website.

Learn more about troubleshooting WordPress.