Sláturfélag Vopnfirðinga

Sláturfélagið var stofnað 1989 af bændum í Vopnafirði. Sláturfélagið leggur metnað sinn í að borga bændum samkeppnisfært verð og veita góða þjónustu. Heimamenn eiga meirihluta hlutabréfa í félaginu  í dag en kaupandi afurða félagsins,  Kjarnafæði, á um fjórðung hlutafjár.