Sauðagull

Sauðamjólk var um aldir nýtt til manneldis hér á landi og unnið úr henni skyr, smjör og ostar. Þekking á þessu mjög svo íslenska handverki hefur að mestu glatast. Meðal afurða Sauðagulls eru ýmsir ostar úr sauðamjólk og dýrindis konfekt.

Sauðagull stefnir á að endurvekja handverkin með að framleiða nútímalega og einstaka matvöru úr sauðamjólk. Með því er von á að styðja við íslenska sauðfjárrækt og hvetja aðra til að nýta þetta holla, bragðgóða og næringarríka hráefni.